þriðjudagur, febrúar 22

Sko minn kall!

Já, gestur númer eitt þúsund á síðunni minni reyndist vera ég sjálfur!
Þetta verður bara að teljast alveg þokkalegt, þúsund hitt á tveimur mánuðum sirka. Það vill gera fimm hundruð á mánuði, eða 16,67 á dag, sirka. Og þar sem ég kíki sjálfur á síðuna sirkabát fimmtán sinnum á dag gerir það um það bil 1,67 gestur á dag, sem er mjög gott!

Framundan eru tónleikar á Þinghúsi. Þeir eru á föstudaginn. Föstudaginn 25. febrúar. Þeir eru með mér. Og Sveini bakara. Við ætlum að spila. Og svo spila. Lög. Ég man ekki hvenær á að byrja.

Bæ.

mánudagur, febrúar 7

Risatónleikar

Ágætu aðdáendur og aðrar endur.
Vegna gífurlegra viðbragða við síðasta pósti höfum við skötuhjúin ákveðið að færa fyrirhugaða tónleika frá Þinghúsi og yfir í Egilshöllina. Fetum við þar með í fótspor tónlistarmanna eins og grallaraspóanna í Metalikku og.... svona mætti lengi áfram telja. Munum við að sjálfsögðu brúka sama hljóðkerfi og Metalikka, ekki veitir af.
Munum við flytja verk á borð við "ðe Bubbi byggir þím", "ðe Pósturinn Páll þím" og "ðe Stubbarnir þím". Ættu allir að finna þarna eitthvað við sitt hæfi.
Aðgangseyrir: A-svæði, kr. 750; B-svæði, kr. 500; C-svæði, kr. 325.
Öryggisgæsla verður í sögulegu lágmarki þannig að gestir eru beðnir að skikka sér haganlega.

Að öðru.
Mig vantar vinnu á Akureyri. Vel launaða nota bene!
Endilega látið mig vita ef þið vitið um eitthvað slíkt.
Nú verður ekki lengur undan vikizt, nú eru 2/3 Zetora fluttir norður, því hefur yfirzetor ákveðið að ekki megi hann minni vera.

Góðar stundir.

Free Web Site Counter
FreeLogs.com